Góð samvinna byrjar á samtali.

Hvort sem þú ert með spurningu, hugmynd eða verkefni viljum við heyra frá þér. Hjá ACCORA mætum við þér með reynslu, sérþekkingu og trausti.

Algengar spurningar

Hvað viltu vita?

Hér finnur þú svör við nokkrum algengum spurningum. Hafðu endilega samband ef þú vilt vita meira.

Er ACCORA nýtt fyrirtæki?

ACCORA er nýtt nafn byggt á sterkum stoðum. Fyrirtækið byggir á áratuga reynslu, djúpri sérþekkingu og traustum samböndum á íslenskum og alþjóðlegum markaði.

Hvernig kemst ég í samband við ykkur?

Sendu okkur fyrirspurn með því að fylla út fyrirspurnarformið hér á síðunni, sendu okkur tölvupóst á accora@accora.is , sláðu á þráðinn í síma 517 7600 eða kíktu í heimsókn til okkar á Smiðjuveg 4b-e í Kópavoginum eða í Grófina 10 í Reykjanesbæ.

Get ég haft samband vegna verkefnis eða samstarfs?

Já hafðu endilega samband við okkur ef þú ert með verkefni sem við getum hjálpað þér með eða ef þig vantar samstarfsaðila í verkefni.

Starfar ACCORA á alþjóðlegum markaði?

Í dag starfar ACCORA á Íslandi en í alþjóðlegu umhverfi þar sem við vinnum meðal annars náið með erlendum birgjum og erlendum viðskiptavinum gagnavera.

Hvaða upplýsingar ætti ég að láta fylgja fyrirspurninni?

Þegar þú sendir okkur fyrirspurn máttu gjarnan láta fylgja góða lýsingu á erindinu, hvort það varði almennar raflagnir, fjarskipti, varaafl, kælilausnir eða annað sem við getum aðstoðað með. Það hjálpar okkur að finna rétta aðilann til að bregðast við fyrirspurninni.

Þarf ég að vera með fullmótaða hugmynd áður en ég hef samband?

Nei þú þarft alls ekki að hafa fullmótaða hugmynd áður en þú hefur samband. Sérfræðingar okkar hjálpa þér frá byrjun, ráðgjafar okkar hjálpa þér að móta verkefnið, hanna og velja rétta lausn osfrv.