Um okkur

ACCORA er íslenskt tækni- og þjónustufélag á sviði orku og innviða. Félagið hannar, setur upp og þjónustar flókin rafkerfi og veitir heildarlausnir í rafverktöku, fjarskiptum, varaafli og kælingu. ACCORA er jafnframt umboðs- og þjónustuaðili fyrir búnað frá leiðandi framleiðendum á borð við Schneider Electric og ThermoKey.

Hafa samband

ACCORA sameinar áratugalanga reynslu og sérþekkingu á rafmagni, fjarskiptum, kælingu, varaafli og öðrum mikilvægum innviðum. Við komum að verkefnum frá ráðgjöf og hönnun til uppsetningar, vöktunar, viðhalds og þjónustu og færum viðskiptavinum okkar þannig eina leið inn að fjölbreyttri sérþekkingu.

Um 170 starfsmenn ACCORA þjónusta gagnaver, fyrirtæki og stofnanir um allt land, þar sem miklar kröfur eru gerðar til gæða, rekstraröryggis og skjótra viðbragða.

Um fyrirtækið

Saga ACCORA

ACCORA varð til árið 2026 þegar Rafholt og orku- og innviðasvið Origo sameinuðust. Saga félagsins nær þó mun lengra aftur, allt til ársins 1987 þegar Tölvulagnir urðu umboðsaðili APC (American Power Conversion), í dag hluta af Schneider Electric. Þar var grunnurinn lagður að áratugalangri sérþekkingu á UPS-kerfum, varaafli og öruggri orku fyrir mikilvæga innviði á Íslandi.

Árið 1992 tók Nýherji við starfseminni og áfram hélt uppbygging þekkingar á rekstraröryggi og orkuinnviðum. Á næstu árum þróaðist starfsemin frá hefðbundnum UPS-lausnum yfir í stærri og flóknari innviðaverkefni fyrir fyrirtæki, stofnanir og gagnaver.

Á sama tíma hófst önnur vegferð þegar Rafholt var stofnað árið 2002. Félagið byggði hratt upp sterka stöðu í rafverktöku, fjarskiptum og innviðauppbyggingu og varð síðar einn stærsti og öflugasti rafverktaki landsins. Meðal mikilvægra áfanga voru samstarf við Mílu um fjarskipta- og ljósleiðarainnviði, þátttaka í uppbyggingu Hörpu, Hellisheiðarvirkjunar og Bláa Lónsins og lykilhlutverk í ljósleiðaravæðingu Suðurnesja.

Árið 2018 varð Origo til með sameiningu Nýherja, TM Software og Applicon, sem sameinaði áratuga reynslu á sviði upplýsingatækni, innviða og þjónustu undir einu vörumerki. Á árunum sem fylgdu jókst sérhæfing enn frekar með stofnun Skyggnis og endurskipulagningu starfseminnar.

Með sameiningu Rafholts og orku- og innviðasviðs Origo árið 2026 varð til ACCORA. Félagið sameinar nærri fjögurra áratuga reynslu af öruggri orku, varaafli og kælilausnum við yfir tvo áratugi af rafverktöku, fjarskiptum og innviðauppbyggingu.

Í dag er ACCORA leiðandi tækni- og þjónustufyrirtæki sem hjálpar gagnaverum, fyrirtækjum og stofnunum að byggja upp örugga, áreiðanlega og framtíðarhæfa innviði.

Lesa nánar
Nálgun okkar

Verksvið

Starfsemi ACCORA skiptist í fjögur svið sem saman ná yfir allt frá almennum raflögnum til háspennu og stórframkvæmda. Þannig getum við fylgt verkefnum frá hönnun og uppsetningu yfir í rekstur og sólarhringsþjónustu, með einn samningsaðila og eina ábyrgð. Starfsstöðvar okkar eru á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum.

Raflagnasvið sinnir almennum raflögnum og stærri og lengri verkefnum, svo sem uppsteypuverkefnum og nýlögnum í atvinnuhúsnæði og öðrum byggingum. Sviðið vinnur náið með verktökum, hönnuðum og verkkaupum frá fyrstu teikningu til afhendingar.

Fjarskiptasvið sinnir tæknilegri verkefnum á sviði fjarskipta og smáspennu, þar á meðal ljósleiðaralögnum, splæsingu og mælingum, netlögnum og öðrum smáspennukerfum. Sviðið býr yfir mikilli reynslu og sérfræðiþekkingu og er þjónustuaðili fjarskiptafyrirtækja um land allt.

Innviðasvið sér um kælingu, varaafl og rafstöðvar fyrir gagnaver og aðra starfsemi sem þolir ekki rekstrartruflanir. Þar undir fellur ráðgjöf, sala, uppsetning og viðhald á kælikerfum, UPS-kerfum og rafstöðvum, ásamt fyrirbyggjandi viðhaldi og vöktun á rekstrarmikilvægum innviðum.

Orkusvið sinnir háspennu og stórframkvæmdum, svo sem spennistöðvum, rofabúnaði og orkukerfum fyrir gagnaver, iðnað og aðra stórnotendur. Sviðið vinnur í samstarfi við Landsnet og Veitur að tengingu nýrra og stækkaðra innviða við dreifikerfið.

ACCORA býður fyrirtækjum nokkrar tegundir þjónustusamninga þar sem hægt er að skilgreina neyðarstig fyrir sólarhringsþjónustu viðeigandi sérfræðinga. Þjónustusamningur tryggir forgang í þjónustu, stuttan viðbragðstíma og reglubundið fyrirbyggjandi viðhald, hvort sem um er að ræða raflagnir, fjarskipti eða rekstrarmikilvæga innviði.

Hvaðan kemur nafnið?

ACCORA er nýyrði sem var valið til að virka jafnt á Íslandi og erlendis. Fyrstu stafirnir, AC, vísa í riðstraum (e. alternating current) og heim rafmagns og orku. Í nafninu má einnig greina orðið CORE, kjarna, enda er hlutverk félagsins að tryggja þá innviði sem eru kjarninn í rekstri viðskiptavina. Nafnið kallast jafnframt á við ensku orðin accord, accurate og connect; samhljóm, nákvæmni og tengingar.

Merki félagsins sækir form sitt í þverskurð rafmagnskapals og táknar ljós, blossa og kjarna. Blái liturinn sem einkenndi Rafholt heldur sér, enda heldur sagan áfram.

STARFSFÓLK

  • Agnar Tryggvason

    Rafiðnfræðingur - Rafvirkjameistari

  • Albert Eðvaldsson

    Gæða- og öryggisstjóri
    A-löggilding

  • Aldís Freyja Kristjánsdóttir

    Rafvirki

  • Aleksandr Botikov

    Rafvirki

  • Alexander Aaron Guðmundsson

    Rafvirkjanemi

  • Alexander Másson

    Rafvirkjanemi

  • Andreas Christian Færseth

    Rafvirkjanemi

  • Anton Franksson

    Rafvirki - Rafeindavirki

  • Anton Örn Pálsson

    Rafvirkjanemi

  • Arnaldur Freyr Birgisson

    Rafvirki

  • Arnar Einarsson

    Rafvirkjameistari

  • Arnar Hólm Ingvarsson

    Tæknimaður

  • Arnar Stefánsson

    Rafvirkjameistari

  • Arnar Þorkell Jóhannsson

    Rafvirki

  • Arnþór Ingi Arnarsson

    Rafvirki

  • Arnþór Lúðvíksson

    Rafvirki

  • Arnþór Sumarliðason

    Rafvirkjanemi

  • Atli Steinn Sougato Pétursson

    Rafvirkjanemi

  • Ágúst Ingi Einarsson

    Rafvirkjanemi

  • Árni Steinn Sigurðsson

    Rafvirki

  • Árni Vilhjálmsson

    Símsmiður

  • Ásgeir Orri Gunnarsson

    Rafvirkjanemi

  • Ásgrímur Sigurbjörn Stefánsson

    Tæknimaður

  • Baldvin Pétur Davíðsson

    Rafvirki

  • Bergþór Hrannar Óskarsson

    Rafiðnfræðingur - Rafvirkjameistari

  • Birgir Ólafsson

    Verkstjóri

  • Birgir Þór Bjartmarsson

    Rafvirki

  • Birnir Snær Helgason

    Rafvirki

  • Bjarki Freyr Sigvaldason

    Rafvirki - Rafeindavirki

  • Bjarki Snær Eysteinsson

    Rafvirki

  • Bjartmar Ari Aðalsteinsson

    Rafvirki

  • Björgvin Haukur Bjarnason

    Rafvirki

  • Björk Viðarsdóttir

    Rafvirki

  • Borgþór Grétarsson

    Sviðsstjóri Orkusviðs
    Rafmagnsverkfræðingur

  • Böðvar Ágúst Ársælsson

    Rafvirkjanemi

  • Daniele Kucyte

    Rafvirki

  • Daníel Ástþór Jónsson

    Rafvirkjanemi

  • Daníel Heimir Kristjánsson

    Rafvirki

  • Daníel Þórður Hafþórsson

    Rafvirki – Suðurnes

  • Daníel Örn Björnsson

    Rafiðnfræðingur - Rafvirkjameistari

  • Davíð Jón Arngrímsson

    Símsmiður

  • Dawid Pawel Zaczek

    Rafvirki

  • Didier Manuel Hincapie Arias

    Rafvirkjanemi

  • Eggert Elí Björgvinsson

    Rafvirki

  • Egill Stefán Magnússon

    Rafvirki

  • Eiður Ófeigur Halldórsson

    Rafvirki

  • Einar Kári Sigurðsson

    Rafvirki

  • Einar Thorlacius Magnússon

    Rafvirki

  • Eiríkur Arnar Björgvinsson

    Rafvirki

  • Elvar Árni Herjólfsson

    Rafvirki

  • Fabian Józef Kosciolek

    Rafvirki

  • Fannar Árni Hafsteinsson

    Rafvirkjanemi

  • Frosti Kjartan Rúnarsson

    Aðstoðarmaður

  • Georg Viðar Hannah

    Rafvirki

  • Gestur Þór Arnarson

    Sérfræðingur - hússtjórnarkerfi

  • Gísli Steinar Valmundsson

    Rafvirki

  • Guðmundur Ingi Jónsson

    Rafvirki

  • Guðmundur Ragnar Ólafsson

    Rafvirki

  • Guðsteinn Þór Valdimarsson

    Rafvirki

  • Gunnar Björn Gunnarsson

    Símsmiður

  • Hafliði Páll Maggason

    Rafvirkjanemi

  • Hafstein Reykjalín Stefánsson

    Rafvirkjanemi

  • Helgi I. Rafnsson

    Framkvæmdastjóri
    Raffræðingur

  • Helgi Marteinn Ingason

    Rafvirki

  • Hildur Eva Þórðardóttir

    Rafvirki – Höfuðborgarsvæði

  • Hilmar Hólm Guðjónsson

    Rafiðnfræðingur - Rafvirkjameistari

  • Hjalti Örn Sólmundsson

    Rafvirki

  • Hlynur Kári Örlygsson

    Rafvirki

  • Hong Nhat Do

    Rafvirki

  • Hubert Krzysztof Awruk

    Rafvirkjanemi

  • Högni Sturluson

    Aðstoðarmaður

  • Inga Steinunn Björgvinsdóttir

    Markaðsstjóri

  • Ingi Pétursson

    Rafvirkjameistari

  • Ingimar Jón Kristjánsson

    Rafvirkjameistari - Yfirverkstjóri þjónustu

  • Ingólfur Breki Arnaldsson

    Rafvirki

  • Ingvar Björnsson

    Rafvirki

  • Ingvar Hálfdán Ólafsson

    Rafvirki

  • Jakub Stankiewicz

    Rafvirkjanemi

  • Jóhann Gunnar Jónsson

    Rafvirki

  • Jóhann Reimar Júlíusson

    Sviðsstjóri fjarskiptasviðs
    Símsmiður

  • Jón Freyr Eyþórsson

    Rafvirki

  • Jón Sigurbjörn Ólafsson

    Símsmiður

  • Jón Viðar Björnsson

    Símsmiður

  • Jón Þór Sveinsson

    Rafvirki

  • J. Friðrik Ingimundarson

    Rafiðnfræðingur - Rafvirkjameistari

  • Kamil Baranowski

    Rafvirki

  • Kjartan Jóhannes Einarsson

    Lager/útkeyrsla

  • Kjartan Þórðarson

    Aðstoðarmaður

  • Kristinn Árnason

    Rafvirki

  • Magnús Geir Arngrímsson

    Rafvirki

  • Magnús Helgi Kristjánsson

    Rafvirki

  • Magnús Stefánsson

    Rafvirkjanemi

  • Magnús Þór Gunnarsson

    Húsasmiður

  • Marel Sólimann Arnarson

    Rafvirki

  • Margrét Ýr Flygenring

    Bókhald

  • Marinó Ingvarsson

    Rafvirkjameistari

  • Mike Kostin

    Rafvirki

  • Orri Andreassen

    Rafiðnfræðingur - Rafvirkjameistari

  • Óliver Ari Þorvarðarson

    Rafvirkjanemi

  • Óliver Helgi Sveinbjörnsson

    Rafvirkjanemi

  • Ómar Viðar Heiðarsson

    Rafvirki

  • Óskar Örn Stefánsson

    Rafvirkjanemi

  • Patrekur Fannar Unnarsson

    Rafvirki

  • Patryk Jakub Kunc

    Rafvirki

  • Paulius Turcinskas

    Aðstoðarmaður

  • Pawel Zakrzewski

    Rafvirki

  • Pála María Birgisdóttir

    Skrifstofustjóri og bókhald

  • Piotr Pawel Kowalski

    Rafvirki

  • Radoslaw Bogdan

    Rafvirkjanemi

  • Rafal Nowojewski

    Rafvirki

  • Ragnar Axel Gunnarsson

    Símsmiður

  • Ragnar Már Ríkarðsson

    Rafvirki

  • Reynir Ólafsson

    Rafvirki

  • Rósa María Friðriksdóttir

    Rafvirkjanemi

  • Rúnar Kjartan Jónsson

    Yfirverkstjóri suðurnes
    Rafvirkjameistari

  • Rúnar Már Jónsson

    Aðstoðarmaður

  • Salvador Orellana Roncero

    Rafvirki

  • Sigurbjörn Rafn Ottósson

    Rafvirki

  • Sigurður Árni Gunnarsson

    Símsmiður

  • Sigurður Hallbjörnsson

    Rafvirki

  • Sigurður Helgi Þorgeirsson

    Rafvirki

  • Sigurður Kári Kristinsson

    Rafvirkjanemi

  • Sigurður Þór Kvaran

    Rafvirkjanemi

  • Sigurgeir Árni Aðalsteinsson

    Rafvirki

  • Stefanía Katrín Einarsdóttir

    Rafvirkjanemi

  • Stefanía Þorbergsdóttir

    Rafvirki

  • Stefán Bragason

    Rafvirki

  • Stefán Gunnar Þorsteinsson

    Rafvirkjanemi

  • Stefán Rafn Sigurbjörnsson

    Rafvirki

  • Steinar Þór Ómarsson

    Rafvirki

  • Sveinn Þórir Guðmundsson

    Rafvirkjameistari

  • Szymon Lukasz Zaczek

    Rafvirki

  • Sæþór Breki Þorgeirsson

    Rafvirkjanemi

  • Sölvi Líndal Brynjólfsson

    Rafvirkjanemi

  • Tómas Ingi Magnússon

    Rafvirki

  • Valgeir Ólafsson

    Lager/þjónusta

  • Vilhjálmur M. Vilhjálmsson

    Sviðsstjóri raflagnasviðs
    Rafvirkjameistari - Löggiltur rafverktaki

  • Víðir Elíasson

    Rafvirki

  • Þórdís Árný Sigurjónsdóttir

    Mannauðs- og gæðastjóri

  • Þráinn Viðar Þórisson

    Rafvirki

  • Örn Þór Alfreðsson

    Aðstoðar framkvæmdastjóri